
Leiðbeiningar á þæfingu
Ókeypis
Fritidsgarn Tove Peer Gynt henta vel til þæfingar
Þvoið það sem á að þæfa í þvottavél við 40 – 60° á hraðkerfi með venjulegu þvottaefni. Yfirleitt er reiknað með því að flíkurnar hlaupi um u.þ.b. 20 % við þæfingu við 40° . Það er erfitt að gefa upp nákvæma stærð á flíkum eftir þæfingu því þvottavélar eru mismunandi og þæfingin getur því orðið mismikil. Við mælum með því að byrja á 40° í upphafi og þvo flíkina frekar aftur ef hún á að hlaupa meira og þá e.t.v. á hærra hitastigi.
Þæfingin verður meiri ef fleiri stykki eru höfð með í þvottavélinni. Ef þæfa á lítið stykki er gott að þvo eitthvað með, t.d. gallabuxur. Gott er að gera prufu fyrst og þæfa hana við lágt hitastig sérstaklega ef prjón






