Skilmálar
Almennt ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.tinna.is. tinna.is áskilur sér rétt til að hafna pöntunum, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef villur í reiknireglum vefverslunar eiga sér stað.
Netverð
Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun í ákveðinn tíma.
Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Póstinum. Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Póstsins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærðar og þyngdar. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma.
Tinna ehf. kemur þeim pöntunum á pósthús daglega sem borist hafa fyrir kl. 12:00 á hádegi frá mánudegi til föstudags. Varan ætti að vera komin á næsta pósthús eftir 1–3 daga eftir landssvæðum og þjónustustigi Póstsins.
Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er afhent af Tinnu ehf. og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent eru á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga frá afhendingu til að hætta við kaupin, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Tinna ehf. allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.
Greiðslur
Greiðsluleiðir eru staðgreiðsla, póstkröfur, kortafærslur frá öllum helstu greiðslukortaútgefendum eða millifærslur á reikning Tinnu. Varan er ekki send af stað fyrr en gengið hefur verið frá fullnaðargreiðslu.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Sendingar úr kerfi Tinnu ehf. kunna að nota upplýsingar, t.d. búsetu og aldur, til að útbúa viðeigandi skilaboð til einstakra meðlima klúbbsins. Meðlimir klúbbsins geta ætíð afskráð sig.
Varnarþing
Samningurinn er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmálana gilda lög um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og lög um neytendakaup nr. 48/2003.
