Verslun Nýbýlavegi 30 · Opnunartímar565 4610tinna@tinna.is

Uppskriftir

Stakar uppskriftir úr prjónablöðunum Tinnu og Ýr, frá Sandnesgarn og Hjertegarn, ásamt ókeypis uppskriftum. Hvað viltu prjóna?

Leiðbeiningar – Þæfing

Fyrir þæfðar uppskriftir, t.d. inniskó og pottaleppa úr Fritidsgarni.

  1. Þvoið við 40°C hita í þvottavél á hraðkerfi fyrir venjulegan þvott. Útkoman getur verið mismunandi eftir vélum.
  2. Þæfingin verður þéttari eftir því sem meiri sápa er notuð og vatnið heitara.
  3. Ef þæfingin er ekki nægileg eftir fyrsta þvott má þreifa sig áfram og endurtaka þvottinn á t.d. 60°C.
  4. Notið ensímfrítt (biofrítt) þvottaefni eða grænsápu. Gott er að hafa fleiri flíkur í vélinni, t.d. einar eða tvennar vinnubuxur.
  5. Strekkið og formið stykkið eftir létta þeytivindu og leggið til þerris.
  6. Athugið: notið venjulegt ullarprógram eða handþvott við 30–40°C ef stykkið er þvegið aftur seinna.