Verslun Nýbýlavegi 30 · Opnunartímar565 4610tinna@tinna.is

Um Tinnu

Tinna var stofnuð 1981 og sérhæfir sig í sölu og þjónustu á hannyrðavörum og útgáfustarfsemi.

Tinna hefur gefið út fjöldann allan af prjónablöðum, s.s. Prjónablaðið Ýr og ungbarnablöð ásamt prjónablaðinu TINNA, sem öll hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Hjá Tinnu er lögð áhersla á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og uppfylla þjónustuþarfir viðskiptavina hverju sinni.

Starfsfólk Tinnu

Pantanir

Hægt er að senda pantanir í gegnum vefinn, á netfangið tinna@tinna.is eða í síma 565 4610. Pöntunarblöð eru í boði fyrir þá endursöluaðila sem óska eftir því.

Þjónustuviðmið

Allar pantanir sem berast fyrir kl. 14:00 berast viðskiptavinum að morgni næsta dags, svo vörur geta borist innan 24 klst. hvert á land sem er. Pantanir eru teknar saman samdægurs og dreift innan höfuðborgarsvæðisins daglega af starfsmönnum Tinnu; sendingar á landsbyggðina fara daglega með Póstinum eða Landflutningum.

Allt á lager

Tinna leggur áherslu á að eiga allar vörur á lager til að tryggja afhendingaröryggi. Ef vara er ekki til heldur Tinna utan um biðpantanir og sendir um leið og hún berst frá erlendum birgjum.

Sandnes verksmiðjan

Sandnesgarn er í dag stærsti framleiðandi af garni í Norður-Evrópu. Verksmiðjan, ein sú elsta í Noregi, framleiðir um 15 milljónir dokka árlega. Peer Gynt og Fritidsgarn verða til sem ull af norskum kindum sem er þvegin, spunnin, lituð og pökkuð í verksmiðjunni.

  1. 1

    Ullin af sauðkindinni þvegin.

  2. 2

    Í risahespum er ull sem hefur verið þvegin og kembd. Þegar litað er í miklu magni eru heilu hespurnar litaðar áður en þær eru spunnar í dokkur.

  3. 3

    Hér sést hvernig garnið er spunnið.

  4. 4

    Í litunar„eldhúsinu“ eru litir blandaðir. Eingöngu eru notuð umhverfisvæn efni og litaðar 200 kg af hespum í hverju kari.

Sandnesgarn er verksmiðja og heildsala þar sem 90% af sölunni fer beint í verslanir. Við erum þakklát fyrir sauðkindina!